Ítrekun á tilkynningarskyldu
Áminning um tilkynningaskyldu
RNSA minnir flugmenn, flugumferðarstjóra og flugvallarstarfsmenn á 12. grein laga nr. 18/2013 um Rannsókn samgönguslysa sem snýr að tilkynningaskyldu vegna flugslysa og alvarlegra flugatvika. þar kemur meðal annars fram að verði flugslys eða alvarlegt flugatvik samkvæmt lögum þessum ber sérhverjum sem um það veit að tilkynna það rannsóknarnefnd samgönguslysa án ástæðulauss dráttar eða ganga úr skugga um að nefndin hafi fengið vitneskju um slysið.
Ítrekun á eldri tillögur
Ítrekun á eldri tillögur í öryggisátt
RNSA ítrekar við Isavia ohf, Isavia ANS ehf og Isavia Innanlandsflugvalla, fyrri tillögur/ábendingar, sem sjá má í Viðauka A, til þess að komast hjá atviki sem þessu og hvetur fyrirtækin til þess að endurskoða viðbrögð við þeim.
Vöktun á loftgæðum um borð í flugvélum
Loftgæði í flugvélum
Rannsóknarnefnd samgönguslysa mælir með því að flugrekendur vakti gæði lofts í loftförum.
Notify ATC in case of in-flight collision
Notify ATC in case of in-flight collision
SIA-Iceland emphasizes that pilots should always advise ATC in case of in-flight collision, both for the emergency services to be put on standby and as well if any assistance is required.
Virða reglur um lágmarksflughæð
Virða reglur um lágmarksflughæð
RNSA beinir því til flugmanna að virða flugreglur varðandi lágmarksflughæð.
Öruggar aðstæður á lendingarstað
Öruggar aðstæður á lendingarstað
RNSA beinir því til flugmanna að lenda ekki utan flugbrauta, nema að ganga úr skugga um að aðstæður séu öruggar.
Skipulagsskrá EASA
Skipulagsskrá EASA
RNSA beinir því til flugmanna að þeir kynni sér skipulagsskrá (Charter) Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA) um aukið öryggi í einkaflugi á litlum flugvélum.
Takmarkað aðgengi að flugtímagögnum
Takmarkað aðgengi að flugtímagögnum
RNSA vekur athygli Flugöryggisstofnunar Evrópu (EASA) á vandkvæðum þess að eftirlitsaðilar og rannsakendur flugslysa hafi ekki aðgang að flugtímagögnum flugmanna sem látast í flugslysum og höfðu EASA flugskírteini, ef þau eru vistuð á rafrænu formi á landsvæðum sem ekki lúta lögsögu Evrópuríkja.
Radíómaður á jörðu
Miðlun upplýsinga til flugmanna
RNSA beinir því til forsvarsmanna flughátíða á óstjórnuðum flugvöllum að radíómaður á jörðu miðli upplýsingum til flugmanna um umferð sem ekki er í talstöðvasambandi.
Further communication should take place for confirmation
SIA-Iceland reminds pilots, that if there is any doubt about ATC instructions, further communication should take place for confirmation.