Mættir nefndarmenn voru Geirþrúður Alfreðsdóttir formaður, Ingi Tryggvason, Hilmar Snorrason, Pálmi K. Jónsson og Hjörtur Emilsson. Einnig voru á fundinum starfsmenn nefndarinnar, Jón A Ingólfsson rannsóknarstjóri og Guðmundur Lárusson fulltrúi.

Á dagskrá fundarins voru 43 mál til afgreiðslu. Í töflu I eru þau mál (9) sem voru lokaafgreidd á fundinum. (Hægt er að nálgast allar lokaskýrslur hér á vefnum). Í töflu II eru mál (14) sem voru afgreidd sem drög og hafa verið send út til aðila þeirra til umsagnar. Öðrum málum (18) var frestað þar sem ekki vannst tími til afgreiðslu þeirra.

Næsti fundur verður 18. október n.k.