Mættir nefndarmenn voru Geirþrúður Alfreðsdóttir formaður, Ingi Tryggvason, Hilmar Snorrason og Pálmi K Jónsson.  Einnig voru á fundinum starfsmenn nefndarinnar, Jón A Ingólfsson rannsóknarstjóri og Guðmundur Lárusson fulltrúi.
 
Á dagskrá fundarins voru 44 mál til afgreiðslu.  Í töflu I eru þau mál (21) sem voru lokaafgreidd á fundinum.  (Hægt er að nálgast allar lokaskýrslur hér á vefnum).  Ellefu málum var frestað (tafla II) og í töflu III eru mál (14) sem voru afgreidd sem drög og hafa verið send út til aðila þeirra til umsagnar.
Næsti fundur verður 12. september n.k.