Mættir nefndarmenn voru Geirþrúður Alfreðsdóttir formaður, Ingi Tryggvason, Hilmar Snorrason, Pálmi K. Jónsson og Hjörtur Emilsson. Einnig voru á fundinum starfsmenn nefndarinnar, Jón A Ingólfsson rannsóknarstjóri og Guðmundur Lárusson fulltrúi.
Á dagskrá fundarins voru alls 49 mál til umræðu og afgreiðslu. Í töflu I eru þau mál (32) sem voru lokaafgreidd á fundinum. (Hægt er að nálgast allar lokaskýrslur hér á vefnum). Sex málum var frestað (tafla II) og í töflu III eru mál (11) sem voru afgreidd sem drög og hafa verið send út til aðila þeirra til umsagnar.
Næsti fundur verður 20. febrúar n.k.