Mættir nefndarmenn voru Ingi Tryggvason, Hilmar Snorrason og Hjörtur Emilsson. Einnig voru á fundinum starfsmenn nefndarinnar, Jón A Ingólfsson rannsóknarstjóri og Einar Ingi Einarsson rannsakandi.

Á dagskrá fundarins voru alls 29 mál til umræðu og afgreiðslu.  Í töflu I eru þau mál (13) sem voru lokaafgreidd á fundinum.  Sjö málum var frestað (tafla II) eða í frekari vinnslu og í töflu III eru mál (5) sem voru afgreidd sem drög og hafa verið send út til aðila þeirra til umsagnar.

Hægt er að nálgast allar lokaskýrslur hér á vefnum. Athygli er vakin á breyttu fyrirkomulagi þar en nú er hægt að nálgast lokaskýrslurnar á PDF formi.

Næsti fundur verður 29. apríl  n.k.