RNSA rakst á frétt á vef Aflafrétta (aflafrettir.is) um veiðar línubáta undir Látrabjargi og birtar myndir af einum þeirra koma til hafnar í Ólafsvík með um 19 tonn af afla. Miðað við þessar myndir þá virðist þessi lestun á bátnum ekki vera til fyrirmyndar, lensport við sjávarmál og fríborð frekar lítið. RNSA hvetur menn til að gæta fyllsta öryggis við lestun báta sinna.