Leita að ábendingar
Veðurskilyrði á flugleið
RNSA beinir þeim tilmælum til flugmanna er hyggja á sjónflug að ganga úr skugga fyrir flug um að veður á flugleið þeirra uppfylli kröfur um sjónflugsskilyrði og láta ekki ytri þrýsting eða fyrirhuguð eigin plön hafa áhrif á ákvörðun sína.
Veðurupplýsingar við undirbúning flugs
RNSA beinir þeim tilmælum til flugmanna er hyggja á sjónflug að kynna sér ítarlega upplýsingar um skýjahuluspá (sem og aðrar flugveðurupplýsingar) sem finna má á vef Veðurstofu Íslands, vedur.is/vedur/flugvedur.
Drægni VHF sambands á hálendi Íslands
RNSA beinir þeim tilmælum til Isavia að kanna hvort bæta megi úr drægi VHF sambands við flugstjórn yfir á hálendinu.
Kynna sér mörk æfingasvæða
Alvarlegt flugumferðaratvik TF-KFB (DA20) og TF-DRO (DynAero) á milli Austursvæðis og Sandskeiðs
RNSA hvetur flugmenn til þess að kynna sér æfingasvæði og halda sig innan þeirra við flugæfingar.
Sjónflugsflugvélar í blindflugsaðstæðum
Flugslys TF-KAJ (Piper-PA-18) á Flám á Tröllaskaga
RNSA leggur áherslu á að flugmenn, og þá sérstaklega þeir sem hafa mikla blindflugsreynslu, vanmeti ekki þær aðstæður sem geta skapast í sjónflugi á flugvélum sem ekki eru útbúnar til blindflugs.
Kynna sér aðstæður áður en lent er utan flugvalla
Flugslys TF-140 (Skyranger) við Kirkjubæjarklaustur
RNSA beinir því til fisflugmanna að kynna sér aðstæður til lendinga ef lenda skal utan flugvalla.
Fá leyfi landeigenda fyrir að lenda
Flugslys TF-140 (Skyranger) við Kirkjubæjarklaustur
RNSA beinir því til fisflugmanna að fá samþykki landeigenda til lendingar ef lenda skal utan flugvalla.
Þyngdar- og vægisútreikningar
Flugslys TF-JPP (Cessna 172) á Garðsaukabraut við Hvolsvöll
Framkvæma þyngdar- og vægisútreikninga fyrir hvert flug, sérstaklega ef verið er að breyta hleðslu á milli fluga
Strekkja sætisólar
Flugslys TF-JPP (Cessna 172) á Garðsaukabraut við Hvolsvöll
Strekkja ávallt sætisólar eftir að þær hafa verið spenntar.
Hvíld fyrir flug
RNSA hvetur flugmenn til þess að huga að hvíld fyrir flug.