Leita að skýrslu
Nýlegar slysa- og atvikaskýrslur:
Grindavíkurvegur
Toyota Hilux bifreið var ekið suður Grindavíkurveg. Á sama tíma var Mercedes Arocs vörubifreið ekið úr gagnstæðri átt norður Grindavíkurveg. Ökumaður vörubifreiðarinnar missti stjórn á bifreiðinni í mjúkri vinstri beygju og rann hún yfir á gagnstæðan vegarhelming og út fyrir veginn. Ökumaður Toyota bifreiðarinnar beygði til hægri og rákust bifreiðarnar saman utan akbrautarinnar. Ökumaður og farþegi í Toyota bifreiðinni létust í slysinu.
Skýrsla 05.01.2024Vesturlandsvegur við Skipanes
Toyota Yaris fólksbifreið var ekið suðaustur Vesturlandsveg við Skipanes. Á sama tíma var Volvo S40 fólksbifreið ekið úr gagnstæðri átt norðvestur Vesturlandsveg. Toyota bifreiðinni var ekið yfir á rangan vegarhelming og framan á Volvo bifreiðina í hörðum árekstri. Ökumaður Toyota bifreiðarinnar lést í slysinu.
Skýrsla 13.12.2023Reykjanesbraut við Innri Njarðvík
Bifreið sem var ekið Reykjanesbraut til vesturs á hægri akrein við Innri-Njarðvík var sveigt yfir á vinstri akrein, inn á miðdeili á milli akbrauta Reykjanesbrautar, á víravegrið sem hún kastaðist af og valt í framhaldi af því. Ökumaður var einn í bifreiðinni og lést hann í slysinu.
Skýrsla 02.11.2023Ásvellir Hafnarfirði
Vegfarandi var á reiðhjóli á göngustíg við Ásvelli og beygði til vesturs innkeyrslu að bifreiðastæði sunnan við Ásvallalaug. Á sama tíma var vörubifreið ekið inn á innkeyrsluna að bifreiðastæðinu og á vegfarandann, sem lést samstundis.
SkýrslaTillaga í öryggisátt:
23-071U015T01. Öryggisáætlun við framkvæmdir
23-071U015T02. Umferðaröryggisáætlun 30.10.2023
Lækjargata-Vonarstræti
Sendibifreið var ekið frá Vonarstræti inn á Lækjargötu í veg fyrir skotbómuvinnuvél með þeim afleiðingum að lyftaragafflar gengu inn í farþegarými sendibifreiðarinnar. Ökumaður hennar lést í slysinu.
SkýrslaTillaga í öryggisátt:
23-066U013T01. Skráningarskylda vinnuvéla
23-066U13T02. Öryggisúttekt á gatnamótunum
23-066U13T03 Yfirfara verklag um skoðanir og skráningar vinnuvéla 13.09.2023
Snæfellsnesvegur norðan Hítarár
Fiat Weinsberg fólksbifreið var ekið suðaustur Snæfellsnesveg skammt norðan við Hítará. Á sama tíma var Nissan X-Trail fólksbifreið ekið úr gagnstæðri átt norðvestur Snæfellsnesveg. Nissan bifreiðinni var ekið yfir á rangan vegarhelming og framan á Fiat bifreiðina í hörðum árekstri. Farþegi í aftursæti Fiat bifreiðarinnar lést í slysinu.
SkýrslaTillaga í öryggisátt:
23-047U009-T01 Forvarnir um svefn og þreytu hjá ökumönnum 17.07.2023
Þrengslavegur
Bifreið, sem ekið var í norðausturátt á Þrengslavegi, fór út fyrir veg hægra megin í mjúkri vinstri beygju og var ekið í vegfláa nokkra stund áður en hún endastakkst nokkrum sinnum. Ökumaður var einn í bifreiðinni og lést hann í slysinu.
SkýrslaTillaga í öryggisátt:
23-046U008 T08. Notkun riffla á vegum 13.07.2023
Laugarvatnsvegur
Bifhjóli var ekið Laugarvatnsveg til norðurs. Skammt frá gatnamótum Laugarvatnsvegar og Biskupstungnabrautar missti ökumaðurinn stjórn á bifhjólinu með þeim afleiðingum að það fór út fyrir veg þar sem hjólið endastakkst. Ökumaður bifhjólsins lést á slysstað af völdum fjöláverka.
SkýrslaTillaga í öryggisátt:
23-043U007T1. Hlífðarbúnaður bifhjólafólks
23-043U007T2. Skoðun bifhjóla
23-043U007T3. Reglugerð um notkun öryggis- og verndarbúnaðar 07.07.2023
Nausthamarsbryggja Vestmannaeyjum
Peugeot fólksbifreið ekið inn á Nausthamarsbryggju í Vestmannaeyjum og stöðvuð þar við bryggjukantinn. Þar var bifreiðin kyrrstæð í tæpar 50 sekúndur. Þá var henni ekið af stað, yfir bryggjukantinn og hafnaði hún í sjónum. Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni og lést hann í slysinu.
SkýrslaTillaga í öryggisátt:
Reglur um mat á andlegu og líkamlegu hæfi
Stuðningur við innleiðingu nýs vottorðseyðublaðs 11.04.2023
Olís við Álfheima
Sprenging varð í þrýstigeymi tvíorkubifreiðar þegar ökumaður hennar var að fylla á hann metaneldsneyti. Sprengingin var öflug. Kastaðist ökumaðurinn frá bifreiðinni, tvö önnur ökutæki skemmdust einnig og tveir aðilar hlutu áverka.
SkýrslaTillaga í öryggisátt:
Eftirlit með þrýstigeymum 13.02.2023