• Slysa- og atvikaskýrslur
  • Tillögur í öryggisátt
Meðferð mála frá árinu 2000. Ef óskað er eftir upplýsingum um eldri mál er bent á að hafa samband við skrifstofu RNSA.
Allar

Fréttir

23.05.2024

 Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur lokið rannsókn á banaslysi sem varð á Höfðabakka í Reykjavík þann 10. desember 2022. Í slysinu lést gangandi vegfarandi eftir að ekið var á hann í tvígang. 

Skýrslu nefndarinnar má finna hér: Höfðabakki í Reykjavík

13.05.2024

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur lokið rannsókn á banaslysi þar sem bifreið, sem ekið var í norðausturátt á Þrengslavegi, fór út fyrir veg hægra megin í mjúkri vinstri beygju og var ekið í vegfláa nokkra stund áður en hún endastakkst nokkrum sinnum. Ökumaður var einn í bifreiðinni og lést hann í slysinu. Skýrslu nefndarinnar má finna hér: Þrengslavegur

 

06.05.2024

RNSA hefur gefið út lokaskýrslu vegna flugslyss flugvélar TF-ABB í Þingvallavatni þann 3. febrúar 2022. Skýrsluna má finna hér.

Hvernig tilkynna skal slys eða atvik

Tilkynning um flugslys eða alvarlegt flugatvik

Verði flugslys eða alvarlegt flugatvik, þar með talið flugumferðaratvik, samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa, ber sérhverjum sem um það veit að tilkynna það Rannsóknarnefnd samgönguslysa án ástæðulauss dráttar eða ganga úr skugga um að nefndin hafi fengið vitneskju um slysið. Bakvaktarsími flugsviðs 24/7 er: 6600336

Atvik önnur en slys eða alvarleg atvik

Vert er að benda á hér gildir ekki 72 tíma regla samkvæmt 125. gr. loftferðarlaga um tilkynningarskyldu atvika. Þar kemur meðal annars fram að einstaklingar skulu tilkynna atvik eins fljótt og verða má en ekki seinna en innan 72 klst. frá því að þeir urðu atviks varir nema sérstakar aðstæður komi í veg fyrir það. Tilkynningar um atvik berast Samgöngustofu.

Tilkynningar um flugslys, alvarleg flugatvik og flugumferðaratvik skal því tilkynna án ástæðulauss dráttar til RNSA, en um tilkynningu annarra atvika til SGS, gildir 72 tíma regla.

Sérstaka skyldur um tilkynningar flugslysa, alvarlegra flugatvika, þar með talið flugumferðaratvika, til Rannsóknarnefndar samgönguslysa hafa:

- Stjórnendur og eigendur eða umráðamenn loftfara

- Flugrekendur

- Samgöngustofa

- Lögregla

- Rekstraraðilar flugvalla og veitendur flugleiðsöguþjónustu

- Oinberar stofnanir á sviði eftirlits með flugsamgöngum

- Sjúkratryggingastofnun og tryggingafélög með starfsstöðvar hér á landi

- Aðrir sem hafa fengið vitneskju um flugslys eða alvarlegt flugatvik

Sama gildir um hvern þann sem finnur loftfar eða aðra hluti við aðstæður er benda til þess að flugslys eða alvarlegt flugatvik hafi orðið.

Bakvaktarnúmer vegna tilkynninga um flugslys, alvarlegt flugatvik eða flugumferðaratvik er allan sólarhringinn:

660-0336

Eyðublað vegna tilkynningar á flugslysi eða alvarlegu flugatviki

Eyðublað vegna tilkynningar á flugumferðaratviki

Tilkynning um slys á sjó

Verði sjóslys eða sjóatvik samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa ber sérhverjum sem um það veit að tilkynna það rannsóknarnefnd samgönguslysa án ástæðulauss dráttar eða ganga úr skugga um að nefndin hafi fengið vitneskju um slysið.

Sérstaka skyldu í þessu tilliti hafa:

  • Stjórnendur og eigendur eða útgerðarmenn skipa.
  • Landhelgisgæsla Íslands, lögregla, rekstraraðilar hafna, tollstjóri og Vaktstöð siglinga.
  • Opinberar stofnanir á sviði eftirlits með skipasamgöngum, Sjúkratryggingastofnun og tryggingafélög með starfsstöðvar hér á landi, auk annarra sem hafa fengið vitneskju um slys eða atvik.

Sama gildir um hvern þann sem finnur skip eða aðra hluti við aðstæður er benda til þess að sjóslys eða sjóatvik hafi orðið.

Bakvaktarnúmer vegna tilkynninga um sjóslys eða sjóatvik er 769-0333 . Rannsakandi er á bakvakt allan sólarhringinn alla daga ársins. Einnig er geta þeir sem hafa aðgang tilkynnti í gegn um Atvik-sjómenn. Í boði er líka að fylla út eyðublað sem hægt er að senda á RNSA@RNSA.is

769-0333 Atvik sjómenn Eyðublað

 

Tilkynning vegna umferðarslysa

Fjarskiptamiðstöð lögreglu eða viðkomandi lögregluembætti skal, svo fljótt sem verða má, koma boðum um alvarleg umferðarslys  í bakvaktarsíma umferðarsviðs Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) sem svarar allan sólahringinn alla daga ársins. Símanúmer bakvaktarsíma er:

863-2643

Ársyfirlit

Á neðangreindum hlekkjum má finna ársyfirlit hvers sviðs: