News
How to report an accident or incident
Tilkynning um flugslys eða alvarlegt flugatvik
Verði flugslys eða alvarlegt flugatvik, þar með talið flugumferðaratvik, samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa, ber sérhverjum sem um það veit að tilkynna það Rannsóknarnefnd samgönguslysa án ástæðulauss dráttar eða ganga úr skugga um að nefndin hafi fengið vitneskju um slysið. Bakvaktarsími flugsviðs 24/7 er: 6600336
Atvik önnur en slys eða alvarleg atvik
Vert er að benda á hér gildir ekki 72 tíma regla samkvæmt 125. gr. loftferðarlaga um tilkynningarskyldu atvika. Þar kemur meðal annars fram að einstaklingar skulu tilkynna atvik eins fljótt og verða má en ekki seinna en innan 72 klst. frá því að þeir urðu atviks varir nema sérstakar aðstæður komi í veg fyrir það. Tilkynningar um atvik berast Samgöngustofu.
Tilkynningar um flugslys, alvarleg flugatvik og flugumferðaratvik skal því tilkynna án ástæðulauss dráttar til RNSA, en um tilkynningu annarra atvika til SGS, gildir 72 tíma regla.
Sérstaka skyldur um tilkynningar flugslysa, alvarlegra flugatvika, þar með talið flugumferðaratvika, til Rannsóknarnefndar samgönguslysa hafa:
- Stjórnendur og eigendur eða umráðamenn loftfara
- Flugrekendur
- Samgöngustofa
- Lögregla
- Rekstraraðilar flugvalla og veitendur flugleiðsöguþjónustu
- Oinberar stofnanir á sviði eftirlits með flugsamgöngum
- Sjúkratryggingastofnun og tryggingafélög með starfsstöðvar hér á landi
- Aðrir sem hafa fengið vitneskju um flugslys eða alvarlegt flugatvik
Sama gildir um hvern þann sem finnur loftfar eða aðra hluti við aðstæður er benda til þess að flugslys eða alvarlegt flugatvik hafi orðið.
Bakvaktarnúmer vegna tilkynninga um flugslys, alvarlegt flugatvik eða flugumferðaratvik er allan sólarhringinn:
660-0336
Eyðublað vegna tilkynningar á flugslysi eða alvarlegu flugatviki
Tilkynning um slys á sjó
Verði sjóslys eða sjóatvik samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa ber sérhverjum sem um það veit að tilkynna það rannsóknarnefnd samgönguslysa án ástæðulauss dráttar eða ganga úr skugga um að nefndin hafi fengið vitneskju um slysið.
Sérstaka skyldu í þessu tilliti hafa:
- Stjórnendur og eigendur eða útgerðarmenn skipa.
- Landhelgisgæsla Íslands, lögregla, rekstraraðilar hafna, tollstjóri og Vaktstöð siglinga.
- Opinberar stofnanir á sviði eftirlits með skipasamgöngum, Sjúkratryggingastofnun og tryggingafélög með starfsstöðvar hér á landi, auk annarra sem hafa fengið vitneskju um slys eða atvik.
Sama gildir um hvern þann sem finnur skip eða aðra hluti við aðstæður er benda til þess að sjóslys eða sjóatvik hafi orðið.
Bakvaktarnúmer vegna tilkynninga um sjóslys eða sjóatvik er 769-0333 . Rannsakandi er á bakvakt allan sólarhringinn alla daga ársins. Einnig er geta þeir sem hafa aðgang tilkynnti í gegn um Atvik-sjómenn. Í boði er líka að fylla út eyðublað sem hægt er að senda á RNSA@RNSA.is
769-0333 Atvik sjómenn Eyðublað
Tilkynning vegna umferðarslysa
Fjarskiptamiðstöð lögreglu eða viðkomandi lögregluembætti skal, svo fljótt sem verða má, koma boðum um alvarleg umferðarslys í bakvaktarsíma umferðarsviðs Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) sem svarar allan sólahringinn alla daga ársins. Símanúmer bakvaktarsíma er:
863-2643