Um skýrslur RNSA
Þegar rannsókn slyss eða atviks er lokið skal RNSA svo fljótt sem verða má gefa út lokaskýrslu um niðurstöðu rannsóknarinnar. Í lokaskýrslunni skal gerð grein fyrir orsök eða sennilegri orsök slyss auk þess sem þar skulu gerðar tillögur um ráðstafanir til þess að afstýra frekari slysum af sömu eða líkum orsökum eða draga úr afleiðingum þeirra. Rannsóknarnefnd er heimilt að gefa út yfirlýsingu um lok rannsóknar eða ljúka rannsókn máls með bókun í stað þess að gefa út lokaskýrslu. Þá er RNSA heimilt að taka saman bráðabirgðaskýrslu um rannsókn samgönguslyss eða samgönguatviks áður en rannsókn máls er lokið til þess að koma upplýsingum á framfæri við yfirvöld og málsaðila.
Vert er að minna á að samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa skal skýrslum rannsóknarnefndar um rannsókn einstakra slysa og atvika, ekki beitt sem sönnunargögnum í dómsmálum og skal ekki leitast við að skipta sök eða ábyrgð.