Leita að ábendingar
Vetrarakstur
Vetrarakstur
Vetrarakstur
Á vef Samgöngustofu kemur meðal annars fram að ef hætta er á að veður, vindur eða færð skerði umferðaröryggi þarf að athuga vel aðstæður á akstursleið áður en haldið er af stað. Þegar gengur á með skúrum eða éljum kann að hvessa og skyggni getur versnað hratt.
Á eftirfarandi stöðum má finna upplýsingar um færð og veður, veðurviðvaranir og fleiri upplýsingar þess efnis:
- Umferdin.is: Upplýsingar um færð á vegum, ástand vega og vind. Einnig koma þar fram veðurviðvaranir frá Veðurstofunni og þar má sömuleiðis sjá aðstæður í vefmyndavél þar sem þær eru.
- Vedur.is - Viðvaranir: Viðvaranir vegna veðurs. Varað er við veðri sem getur haft talsverð eða meiri samfélagsleg áhrif.
- Vedur.is - Vindur: Vindstyrkur og vindátt. Veðurstofa Íslands birtir á vef sínum vindakort þar sem vindhraði er sýndur með stöðluðum litakóða og vindátt með örvum. Hægt er að velja þann tíma sem ætlunin er að aka og lesa úr litnum á kortinu á þeim stað sem ekið er, hver væntanlegur vindstyrkur verður, í metrum á sekúndu.
- Safetravel.is: Aðvaranir um sérstaka hættu, bæði á vegum og annars staðar, einkum og sér í lagi vegna veðurs og færðar.
Hálka og glerhálka
Hálka og glerhálka
Hálka og glerhálka
Hálka getur myndast á vegi á nokkra mismunandi máta. Daginn sem slysið varð hafði hitastig verið við frostmark snemma morguns en var komin í 1°C um það leyti sem slysið varð. Einnig mældist mismunandi yfirborðsástand á Grindavíkurveginum milli 10:08 og 10:30 um morguninn meðal annars bleyta en auk þess krapi og snjóþekja. Í tilvikum bleytu getur myndast mikil hálka á vegyfirborði þegar veghiti er undir frostmarki. Ísing sem þessi getur líkst blautum vegi, en myndar spegilsléttan og nærri ósýnilegan þekju á yfirborðinu og því getur verið erfitt fyrir ökumenn að átta sig á aðstæðum. Slíkur ís á vegum er oft kallaður glerhálka eða glæra.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hvetur ökumenn til þess að vera vakandi fyrir hálku og við hvaða aðstæður hún myndast helst. Ökumenn ættu að vera sérstaklega á varðbergi þegar lofthiti er undir 4°C og vegur virðist blautur. Hægt er að finna upplýsingar um færð og veður, veðurviðvaranir og fleiri upplýsingar þess efnis sem og horfa á myndband um ísingu og hálku á heimasíðu Samgöngustofu.
Akstur undir áhrifum ólöglegra fíkniefna og lyfja
Akstur undir áhrifum ólöglegra fíkniefna og lyfja
Akstur undir áhrifum áfengis, vímuefna og lyfja er alvarlegt vandamál í umferðinni. Í tæplega þriðjungi banaslysa í umferðinni árin 2020 til 2023 voru ökumenn undir áhrifum ólöglegra fíkniefna og eða áfengis. Eru þá ótalin önnur alvarleg slys í umferðinni af sömu orsökum. Vímuefni hafa áhrif á dómgreind ökumanna og skynjun þeirra á umhverfið. Viðbragð, hreyfistjórnun og rökvísi skerðast og líkur á alvarlegu slysi aukast.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa ítrekar fyrri ábendingar um akstur undir áhrifum fíkniefna og sljóvgandi lyfja. Nauðsynlegt er að koma þeim skilaboðum á framfæri við ökumenn að þeir aki ekki undir neinum kringumstæðum eftir neyslu slíkra efna.
Akstur vinnuvéla undir áhrifum lyfja í lækningalegum skömmtum
Akstur vinnuvéla undir áhrifum lyfja í lækningalegum skömmtum
Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til forstöðumanna fyrirtækja og stofnana að skýrt komi fram í stefnu að ökumenn vinnuvéla og annarra ökutækja á þeirra vegum aki ekki undir áhrifum lyfja, sem geta skert aksturshæfni.
Öryggisáætlun við framkvæmdir
Öryggisáætlun við framkvæmdir
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hvetur alla veghaldara til að vanda til öryggisáætlana og tengdra umferðaröryggisaðgerða vegna framkvæmda og að tekið sé sérstaklega á vernd umferðar óvarinna vegfarenda gegn umferð ökutækja.
Hægri beygja stærri ökutækja við gatnamót
Hægri beygja stærri ökutækja við gatnamót
Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill koma á framfæri við ökumenn stærri ökutækja að huga sérstaklega vel að óvörðum vegfarendum þegar hægri beygja er tekin á gatnamótum. Útsýn úr stærri bifreiðum er oft takmörkuð og rannsóknir sýna einnig sjónræn mistök ökumanna við skimun eftir óvörðum vegfarendum þegar beygt er. Því er sérstök ástæða til þess að huga að hættum við slíkar beygjur.
Notkun stefnuljósa (1)
Notkun stefnuljósa
Rannsóknarnefnd samgönguslysa ítrekar mikilvægi réttrar notkunar stefnuljósa. Stefnuljós nýtast öllum vegfarendum óháð ferðamáta og skipta miklu máli hvað öryggi og tillitssemi varðar.
Svefn og þreyta (1)
Svefn og þreyta
Ökumaður sem finnur fyrir áhrifum þreytu eða syfju á að taka sér hvíld eða hætta akstri. Rannsóknir Rannsóknarnefndar samgönguslysa hafa sýnt að svefn og þreyta eru meðal helstu orsaka banaslysa í umferðinni. Því er brýnt að ökumenn forðist að aka þreyttir. Margar rannsóknir hafa sýnt að þreyta skerðir aksturshæfni sem og að hætta er á að þreyttur ökumaður dotti eða jafnvel sofni undir stýri. Eins ættu allir að vera á verði og gera athugasemdir við ferðaáætlanir annarra ef sýnt er að þær geri ekki ráð fyrir nægjanlegri hvíld ökumanns.
Akstur undir áhrifum ólöglegra fíkniefna (1)
Akstur undir áhrifum ólöglegra fíkniefna
Akstur undir áhrifum áfengis, vímuefna og lyfja er alvarlegt vandamál í umferðinni. Í níu af 32 banaslysum í umferðinni árin 2020 til 2023 voru ökumenn undir áhrifum ólöglegra fíkniefna og eða áfengis. Eru þá ótalin önnur alvarleg slys í umferðinni af sömu orsökum. Vímuefni hafa áhrif á dómgreind ökumanna og skynjun þeirra á umhverfið. Viðbragð, hreyfistjórnun og rökvísi skerðast og líkur á alvarlegu slysi aukast.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa ítrekar fyrri ábendingar um akstur undir áhrifum fíkniefna og sljóvgandi lyfja. Nauðsynlegt er að koma þeim skilaboðum á framfæri við ökumenn að þeir aki ekki undir neinum kringumstæðum eftir neyslu slíkra efna.
Notkun öryggisbelta (1)
Notkun öryggisbelta
Ökumaðurinn var ekki spenntur í öryggisbelti. Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að hann hefði getað lifað slysið af ef hann hefði verið spenntur í öryggisbelti. Nefndin brýnir fyrir ökumönnum og farþegum að nota ávallt öryggisbelti, hvort sem verið er að fara styttri eða lengri vegalengdir, innan eða utan þéttbýlis. Vanhöld á notkun öryggisbelta eru ein af helstu orsökum alvarlegra áverka og banaslysa í umferðinni.