Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur lokið rannsókn á banaslysi þar sem bifhjóli var ekið Laugarvatnsveg til norðurs. Skammt frá gatnamótum Laugarvatnsvegar og Biskupstungnabrautar missti ökumaðurinn stjórn á bifhjólinu með þeim afleiðingum að það fór út fyrir veg þar sem hjólið endastakkst. Ökumaður bifhjólsins lést á slysstað af völdum fjöláverka. Skýrslu nefndarinnar má finna hér: Laugarvatnsvegur