Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur lokið rannsókn á banaslysi þar sem Toyota bifreið, sem var á leið Vesturlandsveg til suðausturs á móts við Skipanes, var ekið yfir á rangan vegarhelming og framan á Volvo bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Ökumaður Toyota bifreiðarinnar lést í slysinu. Skýrsluna má finna hér: Vesturlandsvegur við Skipanes