Leita að skýrslu
Nýlegar slysa- og atvikaskýrslur:
Flugslys TF-API á Akureyrarflugvelli
Flugslys varð á Akureyrarflugvelli þann 24. nóvember 2004 þegar TF-API hlekktist á í flugtaki með þeim afleiðingum að flugvélin hafnaði í fjöruborði við enda flugbrautarinnar.
Skýrsla 24.11.2004Flugslys TF-ARR (747-200) á Sharjah flugvelli í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum
Endurútgáfa RNF á skýrslu flugmálayfirvalda í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum (GCAA) um flugslys TF-ARR á Sharjah flugvelli þann 7. nóvember 2004.
Skýrsla 07.11.2004Alvarlegt flugatvik TF-SYN (Fokker F27) á Vaagar flugvelli
Neflendingarbúnaður gaf sig í lendingarbruni.
Skýrsla 01.10.2004Flugumferðaratvik TF-ELJ (737-400) á Ítalíu
Aðskilnaðarmissir varð á milli flugvélar Íslandsflugs og annarrar flugvélar á Ítalíu þvert af Vicenza á innleið til Bolzano. Aðskilnaður varð, að mati RNF, vegna kallnúmeraruglins. RNF beinir einni tillögu í öryggisátt til Flugmálastjórnar Íslands.
Skýrsla 05.09.2004Flugumferðaratvik TF-OII (Cessna 150L) og TF-FBA (Piper PA-28R-200)
TF-OII var á leið til lendingar á Reykjavíkurflugvelli um leið 3. TF-FBA var á leið í austursvæði (æfingasvæði) í brottflugi frá Reykjavíkurflugvelli um leið 4. Flugvélarnar mættust í um 1.700 metra hæð mitt á milli Sandskeiðs og spennustöðvar. Aðskilnaðarmissir var 10-30 metrar lóðrétt og 10-50 metrar lárétt að mati flugmanna.
Skýrsla 23.08.2004Flugslys TF-UPS (Piper Warrior II) á graslendi við Húsafell
Flugvél af gerðinni Piper Warrior II nauðlenti á graslendi við Húsafell eftir að strokkur losnaði af hreyfli.
Skýrsla 21.07.2004Flugslys TF-KAJ (Piper PA 18-150) í Þjórsárdal 16. júlí 2004
Flugslys á TF-KAJ í Þjórsárdal þegar flugvélin fór fram yfir sig og á bakið í lendingarbruni
Skýrsla 16.07.2004Fugslys TF-MOS (Bellanca 7GCAA) á Tungubakkaflugvelli
Flugvél af gerðinni Citabria hafnaði utan flugbrautar á flugvellinum á Tungubökkum eftir misheppnaða flugtakstilraun
Skýrsla 15.07.2004Flugslys TF-ELH (Dornier 228) á Siglufjarðarflugvelli
Flugvél af gerðinni Dornier 228 hlekktist á í lendingu á flugvellinum á Siglufirði þar sem hún lenti með hjólin uppi.
Skýrsla 23.06.2004Alvarlegt flugatvik á TF-JXA (MD-82) á Ítalíu
Flugvél af gerðinni MD-82 snéri við eftir flugtak frá Catania Fontanarossa þar sem flugvélin geigaði (yawed) óeðlilega eftir flugtak.
Skýrsla 08.05.2004