Árekstrarhætta sjónflugs í stjórnuðu loftrými
RNSA bendir flugmönnum í sjónflugi í stjórnuðu loftrými að óska eftir frekari upplýsingum um flugumferð framundan, ef þeir sjá hana ekki.
Beiting stýra í hliðarvindi
RNSA beinir þeim tilmælum til flugmanna að þeir kynni sér til hlítar beitingu stýra í hliðarvindi.
Gæta að veðri áður en einflugsnemi er sendur í einflug
RNSA beinir þeim tilmælum til flugkennara að gæta vel að veðri áður en einflugsnemi er sendur í einflug.
Koma í veg fyrir eldsneytisskort
RNSA beinir þeim tilmælum til flugmanna að kynna sér upplýsingar og tilmæli Samgöngustofu varðandi ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir eldsneytisskort.
Hvíld fyrir flug
RNSA hvetur flugmenn til þess að huga að hvíld fyrir flug.
Veður á flugleið
RNSA hvetur flugmenn að huga vel að veðri á flugleið áður en lagt er á stað í sjónflugi.
Veðurskilyrði á flugleið
RNSA beinir þeim tilmælum til flugmanna er hyggja á sjónflug að ganga úr skugga fyrir flug um að veður á flugleið þeirra uppfylli kröfur um sjónflugsskilyrði og láta ekki ytri þrýsting eða fyrirhuguð eigin plön hafa áhrif á ákvörðun sína.
Veðurupplýsingar við undirbúning flugs
RNSA beinir þeim tilmælum til flugmanna er hyggja á sjónflug að kynna sér ítarlega upplýsingar um skýjahuluspá (sem og aðrar flugveðurupplýsingar) sem finna má á vef Veðurstofu Íslands, vedur.is/vedur/flugvedur.
Drægni VHF sambands á hálendi Íslands
RNSA beinir þeim tilmælum til Isavia að kanna hvort bæta megi úr drægi VHF sambands við flugstjórn yfir á hálendinu.
Sjónflugsflugvélar í blindflugsaðstæðum
Flugslys TF-KAJ (Piper-PA-18) á Flám á Tröllaskaga
RNSA leggur áherslu á að flugmenn, og þá sérstaklega þeir sem hafa mikla blindflugsreynslu, vanmeti ekki þær aðstæður sem geta skapast í sjónflugi á flugvélum sem ekki eru útbúnar til blindflugs.